Eitthvað um hálkuslys

Vikan var öllu rólegri en síðasta vika en þó hafði lögreglan í nógu að snúast við að aðstoða borgarana í þeirri ófærði sem verið hefur á götum bæjarins að undanförnu. Eitthvað var um hálkuslys og aðstoðaði lögreglan fólk sem dottið hafi sökum hálku. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram en eitthvað var um útköll í heimahús […]
Allt að verða klárt fyrir Mugison

Vinsælasti tónlistarmaður Íslands í dag, Örn Elías Guðmundsson eða Mugison heldur tónleika í Höllinni í Eyjum í kvöld. Bjarni Ólafur Guðmundsson í Höllinni var í óða önn að raða upp fyrir tónleikana en húsið opnar klukkan 19 og tónleikarnir hefjast 20. Frítt er á tónleikana. (meira…)
Herjólfur í �?orlákshöfn fram yfir jól

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar fram yfir jól, eða til mánudagsins 26. desember í það minnsta. Ölduspá fyrir Landeyjahöfn er óhagstæð næstu daga og því verður að sigla til Þorlákshafnar. Herjólfur siglir tvær ferðir á dag, frá Eyjum 8:00 og 15:30 og frá Þorlákshöfn 11:45 og 15:30. Vakin er athygli á því að aðeins verður ein […]
Sofnar í tíma og ótíma og missir allan mátt þegar hún hlær

Berglind Dúna Sigurðardóttir, 17 ára Eyjastúlka er með tveir tegundir af svefnsýki. Annars vegar sofnar hún í tíma og ótíma og hins vegar lamast allir vöðvar í líkamanum þegar hún hlær. Berglind Dúna segir í samtali við Pressuna að hún telji sig hafa smitast þegar hún var sprautuð gegn svínaflensu. (meira…)
Dýpkað fyrir 560 milljónir

Heildarkostnaður við dýpkun í Landeyjahöfn verður að ári kominn í um 560 milljónir króna, gangi áætlanir Siglingastofnunar eftir. Frá því að höfnin var tekin í notkun í júlí 2010 hefur kostnaður við dýpkun hafnarinnar verið um 345 milljónir króna. (meira…)