Búist við stormi í nótt og á morgun

Veðurstofa Íslands varar við stormi víða um land í nótt, m.a. í Vestmannaeyjum. Samkvæmt veðurspánni byrjar að hvessa í kvöld og í nótt á að vera 20 til 24 metrar á sekúndu. Vindhraðinn á svo að ná hámarki um hádegisbil þegar Veðurstofan spáir 27 metra meðalvindhraða á Stórhöfða. Ofankomu er spáð með þessum mikla vindi […]

Sjófuglar í Vestmannaeyjum

Formaður Fuglaverndunarsamtaka Íslands (man ekki nafnið á honum) tjáði sig í vikunni og lýsti þeirri skoðun sinni, að réttast væri að friða veiðar á öllum sjófuglum á Íslandi. Í fyrstu hélt ég að þetta væri einhvers konar grín, eða að hann væri náinn ættinig sjálfsmenntaðs lundasérfræðings Vestmanneyja, Erps Snæs Hanssonar, en ég þekki það bara […]

Ein líkamsárás í heimahúsi í vikunni

Vikan var á rólegri nótunum hjá lögreglu nema hvað það voru nokkur útköll vegna slysa þar sem fólk var að renna í hálku og voru einhver dæmi um beinbrot. Þá slasaðist maður sem var að skjóta upp skoteldum á Þrettándanum þegar skoteldur sprakk og lenti hluti hans í hönd og höfði mannsins. Hann mun hins […]

Dósasöfnun handboltans í kvöld

Í kvöld kl. 18.00 ætla leikmenn og velunnarar handknattleiksdeildar ÍBV að fara um bæinn og safna dósum. Móttökur bæjarbúa hafa alltaf verið frábærar og þökkum við stuðninginn í gegnum tíðina. Þeir sem ekki verða heima á meðan söfnun stendur geta sett pokann við útidyrnar eða haft samband við Jóa Grettis í síma 694-2656 eða Daða […]

Herjólfur fór seinni ferðina

Herjólfur sigldi síðari ferðina í dag en skipið hélt úr höfn rétt áðan klukkan 15:30. Brottför úr Þorlákshöfn verður 19:15 en rekstraraðili skipsins, Eimskip varaði farþega sína sérstaklega við töluverðum veltingi í ferðinni. Hins vegar er útlitið slæmt varðandi morgundaginn og hugsanlega þarf að fella niður ferð eða ferðir. (meira…)

Fyrsti titillinn í höfn

Karlalið ÍBV í knattspyrnu hampaði í gær sínum fyrsta titli í ár þegar liðið vann Íslandsmótið í Futsal. Í úrslitaleik mætti ÍBV Víkingi frá Ólafsvík en úrslitaleikurinn fór fram í Laugardalshöll. Yfirburðir Eyjamanna voru talsverðir í leiknum enda vann ÍBV leikinn 5:0 og það þrátt fyrir að Tryggvi Guðmundsson hafi fengið að líta rauða spjaldið […]

Fyrri ferð mánudag fellur niður

Fyrri ferð Herjólfs mánudaginn 9. janúar fellur niður vegna öldu- og veðurspá. Gert er ráð fyrir 7-10 m ölduhæð og 16-20 m vindhraða. Farþegar eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við afgreiðslu herjólfs í síma 481-2800 til að breyta pöntunum sínum. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.