Sigmund Eyjamaður ársins 2011

Sigmund Jóhannsson, teiknari og uppfinningamaður er Eyjamaður ársins 2011 að mati ritstjórnar vikublaðsins Frétta. Afhendingin á Fréttapýramídanum, viðurkenningum blaðsins fyrir afrek síðasta árs fór fram í hádeginu en Sigmund hefur í gegnum árin verið frumkvöðull í öryggismálum sjómanna, auk þess sem hann var samviska þjóðarinnar um áratugaskeið í gegnum skopmyndir í Morgunblaðinu. (meira…)
Seinni ferð Herjólfs fellur einnig niður

Seinni ferð Herjólfs þriðjudaginn 10. janúar fellur niður vegna veðurs og sjólags. Farþegar eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við afgreiðslu Herjólfs í síma 481-2800 til að breyta pöntunum sínum. (meira…)
Dregin til Eskifjarðar

Togarinn Bergey frá Vestmannaeyjum var dreginn til Eskifjarðar í nótt, en skipið fékk veiðarfæri í skrúfuna í gær. Óhappið átti sér stað um kl. 3 í gær. Togarinn Vestmannaey tók Bergey í tog. Ferðin gekk vel, en mjög hvasst var þó í Reyðarfirði um miðnætti og fór veðurhæðin upp í 70 hnúta. (meira…)