Stal lunda og fór með hann á Lundann

Um helgina var lögreglunni í Vestmannaeyjum tilkynnt að uppstoppuðum lunda hafi verið stolið af skemmtistaðnum Conero. Vitað var hver var þar að verki og fóru lögreglumenn á stúfana og höfðu uppi á manninum á skemmtistaðnum Lundanum, með lundann. Lundinn, það er að segja sá uppstoppaði, hafði eitthvað skemmst í flutningunum en maðurinn kvaðst tilbúinn að […]
Smurstöðin fallin

Um síðustu helgina voru þeir hjá Laurel & Hardy að brjóta niður Smurstöðina við Græðisbraut. Þetta hús átti sögu en kannski ekki mjög merka sögu. Byggð til að þjóna miklum fjölda vörubíla sem hér voru, trogbílarnir voru reyndar lengst af á síðustu öld miklu fleiri en minni einkabílar hér í Eyjum. Eftir að Bílastöðin hætti […]
Stórleikur hjá stelpunum á morgun

Kvennalið ÍBV á fyrir höndum afar mikilvægan leik á morgun, þriðjudag klukkan 18, þegar liðið tekur á móti FH í undanúrslitum Eimskipsbikarkeppninnar. Liðin hafa einu sinni mæst í vetur en þá unnu Eyjastúlkur stórsigur, 24:10 en staðan í hálfleik var 11:6. FH er í neðsta sæti deildarinnar með þrjú stig eftir 10 leiki en ÍBV […]
Opinn fundur VG og Samfylkingar á morgun

Þriðjudaginn 7. feb. kl. 20:00, halda Vinstrihreyfingin- grænt framboð og Samfylkingin sameiginlegan opinn fund í Alþýðuhúsinu. Á fundinn mæta frá Vinstri grænum: Ráðherrarnir Steingrímur J. Sigfússon og Katrín Jakobsdóttir og þingmaðurinn Björn Valur Gíslason. Frá Samfylkingunni: Þingmennirnir Róbert Marshall og Björgvin G. Sigurðsson. Landsmálin almennt verða til umræðu, ekki síst sjávarútvegsmál, atvinnumál, byggðamál, ESB mál […]
Breytingar á akstri Strætó á Suðurlandi

Frá og með 12. febrúar verða gerðar nokkrar breytingar á akstri Strætó bs. á Suðurlandi. M.a. verður bætt við hádegisferð frá Reykjavík á Selfoss og til baka til Reykjavíkur, tekinn upp akstur í Reykholt og bætt við ferð frá Vík til Hafnar á þriðjudögum. (meira…)
Áhöfnin á Herjólfi gerir grín að stöðunni

Um helgina var árshátíð Eimskips haldin í Laugardalshöll og var margt um manninn enda fjölmargir sem starfa hjá fyrirtækinu. Boðið var upp á ýmis skemmtiatriði en eitt atriðið vakti verðskuldaða athygli. Áhöfnin á Herjólfi fór þá upp á svið og flutti frumsaminn texta við lagið Lífið er lotterí en textann sömdu þeir Gunnar Heiðar Gunnarsson, […]
Elísa æfir með Potsdam

Elísa Viðarsdóttir, varnarmaður í knattspyrnuliði ÍBV æfir þessa dagana með einu besta liði Evrópu, Potsdam. Elísa er í heimsókn hjá systur sinni, Margréti Láru sem er leikmaður liðsins en Elísu var boðið að æfa með liðinu í heimsókninni. Þetta kemur fram á heimasíðu ÍBV, www.ibvsport.is. (meira…)