Til styrktar Gunnari Karli

Á morgun, laguardag er leikur Liverpool og Man. Utd kl. 12:45. Verður leikurinn sýndur í Hallarlundi og munu Einsi kaldi og Höllin verða með sælkera­borg­ara og bjór eða gos á 2000 kr. eða frjálst framlag. Allur ágóði af sölunni mun síðan renna til Gunnars Karls Haraldssonar, sem hefur átt í erfiðum veikindum. (meira…)

Afinn færður til 18. maí

Vegna óviðráðanlegra orsaka verður að færa sýninguna á Afanum til föstudagsins 18. maí en sýna átti einleikinn bráðskemmtilega nú á laugardagskvöldið. Bæði Sigurði Sigurjónssyni og Björgvini Þór Rúnarssyni, sem flytur sýninguna, til Eyja þykir miður að þurfa grípa til þessa ráðs en ákvörðunin var sameiginleg. (meira…)

Íbúar sjávarbyggða hafa verið blekktir

Eftir að að hafa hlustað á erindi þitt í Valhöll s.l. haust, þar sem þú fórst yfir breytingartillögur ríkisstjórnarinnar um fiskveiðistjórn, þá komst ég að því að hagsmunir meirihluta íbúa sjávarbyggða eru langt í frá ofarlega í ykkar huga. Það sem ég tel að þið séuð að gera með því að halda uppi stanslausum hatursáróðri […]

�?órarinn Ingi og Gunnar Heiðar spila gegn Japönum

Eyjamennirnir Þórarinn Ingi Valdimarsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson munu leika með íslenska karlalandsliðinu gegn Japönum, í Japan 24. febrúar næstkomandi. Gunnar Heiðar hefur lengi verið viðloðandi íslenska landsliðið en Þórarinn Ingi er í fyrsta sinn í leikmannahópi A-landsliðsins. (meira…)

Hátíðarmynd Páls Steingrímssonar sýnd á laugardag

Sagnheimar, byggðasafn er opið í vetur á laugardögum kl. 13-16. Undanfarna laugardaga hafa verið sýndar nokkrar myndir úr frábæru heimildamyndasafni Páls Steingrímssonar (KVIK kvikmyndagerð). Laugardaginn 11. febrúar er komið að síðustu myndinni í þessari syrpu, myndinni Hátíð, þar sem fjallað er um Þjóðhátíð og mannlíf í Vestmannaeyjum á árunum 1980-1990. Myndin verður sýnd kl. 13:30 […]

Tilgangur lífsins að verða afi

Einleikurinn Afinn verður sýndur í Höllinni á morgun, laugardag. Það er enginn annar en gamanleikarinn góðkunni, Sigurður Sigur­jónsson, sem fer með aðalhlutverkið í verkinu en leikstjórn var í höndum Bjarna Hauks Þórssonar, sem einnig samdi verkið í samstarfi við Sigurð. Þeir félagar hafa áður unnið saman, bæði að Hellisbúanum og einleiknum Pabbinn en ákváðu að […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.