Efnilegasti leikmaður MK Dons í ÍBV

Eyjamenn fá góðan liðsstyrk í dag þegar enski miðjumaðurinn George Baldock gengur í raðir Eyjaliðsins. Baldock þessi kemur frá enska C-deildarliðinu MK Dons en leikmaðurinn er varnartengiliður og 19 ára gamall. Hann hefur leikið þrjá leiki fyrir MK Dons á þessu tímabili en verið í láni hjá Northampton Town og Tamworth. (meira…)
Einar töframaður byrjar 19:30 í kvöld

Töframaðurinn Einar Mikael mun vera með sýningu í Höllinni í kvöld, 3. maí en hér með er áréttað að sýningin hefst klukkan 19:30. Sýningin er stútfull af áhrifamiklum töfrabrögðum og miklum húmor. Þetta er 70 mínútna löng fjölskylduvæn töfrasýning, sem hefur að geyma allt það besta sem töframaðurinn Einar Mikael er búinn að vera að […]
Missið ekki af �?? BANASTUÐ�?�

Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða á BANASTUÐ. Ég vil eindregið hvetja fólk til að láta þessa flottu sýningu ekki fram hjá sér fara. Sýningin er frumleg, flott og alveg stórskemmtileg. (meira…)
Vestmannaeyjabær skilar jákvæðum rekstrarafgangi fimmta árið í röð

Ársreikningar Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2011 hafa nú verið birtir. Heildar rekstrartekjur samstæðu Vestmannaeyabæjar námu 4.022 m.kr. og rekstrargjöld fyrir fjármagnsliði námu 3.548 m.kr., fjármagnsliðir nettó voru jákvæðir um tæpar 50 m.kr. Rekstrarafkoma ársins var því tæpar 525 m.kr. Rekstrartekjur jukust um 591 m.kr. á milli ára og skýrist það fyrst og fremst á mikilli hækkun […]