Leikurinn klukkan 13:00 á morgun

Leiktíma leiks ÍBV og Vals í 1. umferð Pepsídeildar kvenna hefur verið breytt. Leikurinn átti upphaflega að fara fram klukkan 16:00 á morgun, sunnudag en leiknum hefur verið flýtt til klukkan 13:00. Leikurinn verður án efa mjög spennandi enda voru liðin tvö í toppbaráttu í fyrra og enduðu í öðru og þriðja sæti deildarinnar. (meira…)
Gunnar Karl fánaberi íslenska hópsins
Eyjapeyinn Gunnar Karl Haraldsson tekur þátt í Norðurlandamóti fatlaðra í boccia um helgina. Mótið fer fram í Laugardalshöll í dag en mótið hófst í morgun með sérstaktri setningarathöfn. Þar gengu keppendur þjóðanna inn hver á fætur annarri en Gunnar Karl var fánaberi íslenska hópsins. (meira…)
Arndís �?sk syngur lög Adele í kvöld

Ég hef verið einlægur aðdáandi Adele og hennar tónlistar síðan tónlistarferill hennar hófst. Það var því draumur minn að halda tónleika með lögunum hennar þar sem að ég segi einnig aðeins frá henni og hvernig hún samdi lögin. Einnig fannst mér röddin mín henta einstaklega vel í lögin hennar. Sá draumur varð að veruleika þegar […]