Ferðum Herjólfs aflýst

Öllum ferðum Herjólfs sem vera átti eftir hádegi í dag hefur verið aflýst vegna veðurs. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Eimskip en þar segir jafnframt að næsta ferð sé fyrirhuguð klukkan 8:00 í fyrramálið, mánudag. (meira…)
�?olinmæðissigur gegn Val í rokinu

Það er óhætt að segja að kvennalið ÍBV hafi byrjað Íslandsmótið vel en liðið lagði í dag Val að velli á Hásteinsvellinum 4:2 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 0:2 Val í vil. Það var reyndar rokið sem lék aðalhlutverkið í dag. Sterkur vindur stóð beint á annað markið enda komu öll mörk leiksins […]
Sneri aftur til Eyja sökum veðurs

Herjólfur er nú kominn aftur til Vestmannaeyja þar sem ófært var til Landeyjahafnar. Fram kemur í tilkynningu að skipið hafi beðið í um 50 mínútur fyrir utan Landeyjahöfn en gat ekki siglt inn vegna mikils vinds, sem hafi verið allt að 30 metrar á sekúndu. (meira…)
Hverjir mega hafa skoðun?

Síðustu daga hafa auglýsingar frá aðilum sem eru á móti stórhættulegu kvótakerfi núverandi ríkisstjórnar verið áberandi á öldum ljósvakans. Um leið hafa skæruliðar ríkisstjórnarinnar sett sig í stellingar og hrópað hversu ógeðfelldar auglýsingarnar eru. Allir sem þar koma fram hljóta að vera á launaskrá LÍÚ. Vibbalið… (meira…)
Tvær frá ÍBV í úrvalsliðinu

Lokahóf Handknattleikssambands Íslands var haldið í kvöld en hápunktur kvöldsins er verðaunaafhending fyrir veturinn. Meðal annars var tilkynnt um lið tímabilsins, bæði í karla- og kvennaflokki en í síðarnefnda flokknum átti ÍBV tvo fulltrúa, þær Florentina Stanciu og Ester Óskarsdóttur. (meira…)