Erum ekki í herferð gegn ÍBV

Hörður Magnússon, þáttastjórnandi Pepsímarkanna á Stöð2 Sport segir það alls ekki tilgangur þáttarins að sverta ímynd ÍBV eða fjalla með neikvæðum hætti um liðið. Hann segir að ÍBV sé annað tveggja liða í byrjun Íslandsmótsins sem hafi valdi vonbrigðum og slíkt kalli á gagnrýna umræðu um liðið. Hörður sagðist jafnframt aðspurður ekkert hafa á móti […]
Hvað ef? sýnt í dag, þriðjudag

Uppistands- og skemmtifræðslusýningin Hvað ef? verður sýnd í Félagsheimilinu við Heiðarveg í dag, þriðjudaginn 22. maí. Það er Íslandsbanki sem býður Eyjamönnum á sýninguna og er aðgangur ókeypis. Í sýningunni er fjallað um mál eins og vímuefni, áfengi, kynferðisofbeldi, ölvunarakstur, einelti og foreldravandamál. (meira…)
Allt annað ástand en í fyrra

„Það er allt annað ástand á svartfuglinum nú en í fyrra. Nú er ástandið eðlilegt en það var það ekki í fyrra. Það er mökkur af fugli um allt,“ sagði Valur Andersen, bjargmaður í samtali við Morgunblaðið. Þar kemur einnig fram að Valur hafi stundað eggjatöku í Súlnaskeri, Geirfuglaskeri og Geldungi í mörg ár ásamt […]