Aukin afköst og fleira starfsfólk

Godthaab í Nöf hefur fjárfest í nýrri 24 stæða flæðilínu, útkastlínu og pökkunarkerfi. Á þriðjudeginum fyrir þjóðhátíð var húsnæðið algjörlega tæmt af öllum vélum og tækjum. Á miðvikudeginum var byrjað að leggja nýtt epoxýgólfefni og tók það þrjá daga. Það tók gólfið þrjá daga að þorna og þá var hægt að hefjast handa við að […]
Olíumengun í Vestmannaeyjahöfn

Nokkur olíumengun varð utarlega í Vestmannaeyjahöfn í dag þegar olía lak frá Álsey VE þegar verið var að dæla olíu á milli tanka um borð. Hafnarstarfsmenn fóru á vettvang um leið og ljóst var hvað hefði gerst en Andrés Þ. Sigurðsson hjá Vestmannaeyjahöfn sagði í samtali við Eyjafréttir að niðurbrotsefni hefði verið dreift yfir olíuna. […]
Frábært útsýni yfir Vestmannaeyjar

Á vefnum 360cities.net er hægt að sjá ansi magnaðar myndir frá Vestmannaeyjum. Eins og nafnið gefur til kynna er um að ræða 360° myndir víðs vegar af Vestmannaeyjum, m.a. ofan af Heimkletti, við Stafkirkjuna, ofan af Dalfjalli, innan úr Landakirkju og við Hásteinsvöll. Þannig geta þeir sem hafa ekki þorað upp á Heimaklett, séð af […]
Rúta stórskemmdist við Herjólf

Rúta stórskemmdist í gær þegar henni var ekið upp undir landgöngubrú Herjólfs. Ofan á þaki rútunnar var kælibúnaður sem skemmdist mikið og þak rútunnar flettist af að hluta. Aðeins bílstjórinn var í rútunni þegar óhappið varð, en bílstjórinn meiddist ekki. Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs sagði í samtali við Eyjafréttir.is að svo virðist sem landgöngubrúin hafi […]