Umfjöllun um smölun í Suðurey í Landanum

Í þættinum Landinn á RÚV var sagt frá smölun í Suðurey en lömbin í Suðurey feta ekki troðnar slóðir á leiði sinni í sláturhúsið, eins og segir á vef RÚV. „Þau eru látin síga fram af rúmlega 60 metra háu bjargi niður í bát sem færir þau á Heimaey. (meira…)

Prófkjör 26. janúar á næsta ári

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fundaði um síðustu helgi á Hótel Höfðabrekku í Mýrdal. Þar var samþykkt að halda prófkjör hjá flokknum og verður það 26. janúar á næsta ári. (meira…)

Tæplega þrjú þúsund íbúar Vestmannaeyja eru í þjóðkirkjunni

Íbúar Vestmannaeyja 1. október 2012 eru 4190 talsins og hefur fækkað um 10 frá áramótum. Karlar eru 2180 og konur 2010. Er það samkvæmt því sem gengur og gerist á landsbyggðinni; þar eru karlar yfirleitt fleiri en konur. Í Reykjavík eru þessu hinsvegar öfugt farið. Um tvítugt fer konum í Eyjum fækkandi en uppúr þrítugsaldrinum […]

Við gerum þetta saman

Hermann Hreiðarsson skrifaði undir tveggja ára samning hjá ÍBV-íþróttafélagi en Hermann mun stýra karlaliði félagsins í knattspyrnu. Hermann þarf varla að kynna fyrir Eyjamönnum, enda einn farsælasti knattspyrnumaður Íslands fyrr og síðar, lék um 15 ár í atvinnumennsku, eftir að hafa leikið með ÍBV alla sína tíð og var um tíma landsliðsfyrirliði. (meira…)

Ragnheiður Elín sækist áfram eftir 1. sætinu í Suðurkjördæmi

Ragnheiður Elín Árnadóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, gefur kost á sér til þess að leiða lista flokksins áfram í kjördæminu. Ragnheiður Elín lýsti þessu yfir á fundi kjördæmisráðs Suðurkjördæmis á Höfðabrekku í Mýrdal um helgina þar sem ákveðið var prófkjör yrði haldið 26. janúar n.k. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.