Magnað að sjá mannlausa Manhattan

Eitt versta veður í manna minnum, ­ofsaveðrið Sandy, gengur nú yfir ­austurströnd Bandaríkjanna og er eyðileggingin gríðarleg af völdum ­sjávarflóða, mikillar úrkomu og vinds. Eftir að hafa valdið dauða og eyði­leggingu á Jamaica og Kúbu náði veðrið til sjö ríkja Bandaríkjanna og Kanada og hafði áhrif á líf 60 milljóna manna. Stórborgin New York hefur […]

ÍBV semur við ungan ÍR-ing

ÍBV hefur samið til tveggja ára við framherjann Jón Gísla Ström en skrifað var undir samning við leikmanninn í dag. Jón Gísli er 19 ára gamall og hefur leikið í gegnum alla yngri flokka ÍR. Jón Gísli kom fyrst við sögu með meistaraflokki ÍR sumarið 2010 og hefur síðan þá leikið 56 leiki fyrir félagið […]

Fovarnardagur í Framhaldsskólanum

Forvarnir voru í brennidepli í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum í dag. Hefðbundið skólastarf var lagt til hliðar um tíma og þess í stað sest niður til að ræða hinar ýmsu hliðar þessara mála. Nemendur yngri en 18 ára ræddu vímuefnanotkun á meðal unglinga og nemendur 18 ára og eldri ræddu forvarnir gegn einelti. (meira…)

Oddný sækist eftir fyrst sæti á lista Samfylkingar

Oddný Harðardóttir alþingismaður og þingsflokksformaður Samfylkingarinnar hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1. sæti í forvali flokksins fyrir Suðurkjördæmi sem fram fer 16. og 17. nóvember. Oddný hefur tekið að sér mörg krefjandi ábyrgðarstörf á kjörtímabilinu. Hún varð fjármálaráðherra fyrst kvenna og var formaður menntamála- og fjárlaganefndar. (meira…)

Fjórir peyjar í æfingahópi Íslands

Æfingahópur íslenska landsliðsins í handbolta, skipað drengjum fæddum á árinu 1998drengja fædda 1998 hefur verið valinn en í hópnum eru fjórir Eyjapeyjar. Þetta eru þeir Andri Ísak Sigfússon, Breki Ómarsson, Darri Birgisson og Logi Snædal Jónsson. Strákarnir ættu að kannast vel við þjálfarann, sem er enginn annar en Árni Stefánsson, sem þjálfaði hjá ÍBV áður […]

Vill raunverulegan jöfnuð

Eins og fram kom á Eyjafréttum.is í síðustu viku, býður Guðrún Erlingsdóttir, fyrrum varaþingmaður sig fram í 2. til 3. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar. Guðrún er búsett í Vestmannaeyjum og tók sæti á Alþingi haustið 2009 en í fréttatilkynningu frá henni kemur fram að hún leggi áherslu á réttlátt þjóðfélag, þar sem raunverulegur jöfnuður ríkir. […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.