Bifreið stolið og hún skemmd

Það var í ýmis horn að líta hjá lögreglu í vikunni vegna hinna ýmsu mála sem upp komu. Rólegt var í kringum skemmtistaði bæjarins um helgina en þó var eitthvað um útköll á öldurhúsin vegna ýmissa mála sem upp vilja koma þegar bakkus er með í för. Lögreglu var í vikunni tilkynnt um að bifreið […]

Ellefu sagt upp vegna vímuefnaneyslu

Samkvæmt heimildum Eyjafrétta.is hefur ellefu starfsmönnum Vinnslustöðvarinnar hefur verið sagt upp störfum . Starfsmennirnir mældust jákvæðir fyrir því að hafa notað ólögleg vímuefni en Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson staðfestir að einstaklingar hafi verið prófaðir og mælst jákvæðir. Gerðar voru fíkniefnaprófanir á áhöfnum skipa Vinnslustöðvarinnar. (meira…)

Bjó til heimildarmynd eftir heimsókn til Íslands

Fjölmargir hafa heimsótt facebooksíðuna 1973 Í bátana og skráð sína sögu. Aðrir heimsækja síðuna til að lesa það sem á henni má finna og skoða myndir frá gosinu. Einn þeirra sem heimsótti síðuna er kvikmyndagerðarmaðurinn Theo Maximilian Goble. Sá heillaðist svo af sögu Vestmannaeyjagossins í heimsókn sinni til Íslands 2010, að hann ákvað að ráðast […]

Efnilegir krakkar skrifa undir samning

Tíu ungmenni skrifuðu í síðustu viku undir svokallaðan akademíusamning hjá ÍBV. Félagið mun í kjölfarið borga skóla- og akademíugjöld og skólagjöld í háskóla, ef að ungmennin ákveða að hefja fjarnám og æfa með ÍBV í leiðinni. (meira…)

Hlynur hafði betur

Hlynur Stefánsson, fyrrum knattspyrnukappi, hafði betur gegn Gunnari Friðfinnssyni í úrslitaleik Olísmótsins í snóker á föstudag. Olísmótið er sterkasta snókermót sem haldið er í Eyjum ár hvert en mótinu lýkur með úrslitaleik í einstaklingskeppni. Annars er mótið sveitakeppni á milli klúbbanna Akóges, Kiwanis og Oddfellow. (meira…)

Grease í bíó

Leikfélag Vestmannaeyja fer heldur óvenjulega leið í því að finna búninga í nýjustu uppfærslu sína, söngleikinn Grease. Boðið verður upp á bíósýningu um helgina þar sem kvikmyndin ódauðlega Grease verður sýnd. Þeir sem gefa eða lána Leikfélaginu búninga, fá frítt á sýninguna og geta jafnfram unnið sér miða á frumsýningu Leikfélagsins á söngleiknum. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.