Hin raunverulegu fórnarlömb fíkniefna

Mikil umræða hefur verið um ákvörðun Vinnslustöðvarinnar um að segja upp 11 sjómönnum sem reyndust hafa neytt fíkniefna samkvæmt rannsókn. Ég er sammála ákvörðun VSV og að mestu leiti bæjarstjórans okkar, en er þó mest sáttur við viðbrögð Sjómannasambandsins um að bjóða sjómönnunum aðstoð við að losna úr fjötrum fíkniefna. (meira…)
Líkamsárás í Vestmannaeyjum í nótt

Ein líkamsárás var í nótt úti á götu í Vestmannaeyjum. Tveimur mönnum sinnaðist úti á götu og brá þá annar þeirra hnífi og stakk hinn einu sinni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum fór betur en á horfðist og var gert að sárum hins stungna. (meira…)
Hvað er framundan í samgöngumálum okkar Eyjannna?

Nú hefur Herjólfi ekki verið siglt í Landeyjahöfn síðan 24. nóvember 2012. Í dag er 10. febrúar 2013. Heyrst hefur að ákveðið sé að smíða nýja ferju, sem á að henta betur í Landeyjahöfn. Sú ferja á að vera 60 m löng og fimmtán metra breið, og rista 2,8 m. Áætlað er að hún taki […]