Páll Pálmason tryggði sér um helgina Íslandsmeistaratitil í snóker 67 ára og eldri. Mótið fór fram í Reykjavík en tveir Eyjamenn tóku þátt í mótinu, Páll og Kristján Egilsson. Þeir félagar æfa saman snóker í Kiwanis og sú æfing skilar greinilega árangri því Kristján varð í öðru sæti í mótinu.