Hugmynd um að halda Norðurlandamót í Eyjum

Fyrsta stigamótið í Íslandsmótinu í torfæru fór fram í Vestmannaeyjum um helgina. Keppnin fór fram í gömlu sorpgryfjunni, vestan við Urðarvita en fjölmargir áhorfendur fylgdust með tilþrifum kappanna. Einn Eyjamaður tók þátt í mótinu, Magnús Sigurðsson. Eyjafréttir höfðu samband við Magnús Sigurðsson sem sagði að keppninn hefði verið vel heppnuð og gengið mjög hratt fyrir […]

Höfum mikla trú á Vestmannaeyjum

H-Eyjar ehf. stendur að byggingu Hótels Heimaeyjar og fara þeir Guðbjarni Eggertsson, héraðsdómslögmaður og Einar Valdimarsson, viðskiptafræðingur fyrir félaginu. Guðbjarni segir að allur undirbúningur fyrir byggingu hótels sé afstaðinn og ekkert sé að vanbúnaði að hefjast handa við framkvæmdir. „Framkvæmdir geta hafist strax og lóðinni hefur verið úthlutað, en þessi skoðanakönnun er hluti af því […]

Sönghópur Leikfélagsins með sína fyrstu tónleika í kvöld

Í kvöld mun Sönghópur Leikfélagsins halda sína fyrstu tónleika. Hópurinn var stofnaður í október í fyrra eftir að hafa tekið þátt í stórtónleikunum Ljós í Leikhúsið og hefur hann æft einu sinni í viku síðan. Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg og munu einsöngvarar úr hópnum og leikfélaginu stíga á stokk. Stjórnandi er Sólveig Unnur Ragnarsdóttir […]

ÍBV sækir �?rótt heim í bikarnum

Nú rétt í þessu var að ljúka bikardrætti í bikarkeppni karla í knattspyrnu. Dregið var í 32ja liða úrslitum en úrvalsdeildarliðin voru öll í hattinum. ÍBV mætir 1. deildarliði Þróttar Reykjavík á heimavelli Þróttara í Laugardalnum en áætlað er að leikir í 32ja liða úrstlitum fari fram miðvikudaginn 29. og fimmtudaginn 30. maí. (meira…)

Of mikil lundaveiði í Eyjum

Doktor í líffræði telur að undanfarna áratugi hafi lundaveiði í Vestmannaeyjum verið að jafnaði helmingi meiri en sjálfbær viðmið segja til um. Þetta kemur fram í niðurstöðum í rannsókn Dr. Erps Snæs Hansens, líffræðings hjá Náttúrustofu Suðurlands, á lundastofninum í Vestmannaeyjum. „Veiðar hafa verið of miklar síðustu hálfa öld,“ segir Erpur. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.