Hægt að sækja þjóðhátíðarmiðana í næstu viku

Þeir viðskiptavinir Íslandsbanka sem nýttu sér tilboð í Vildarþjónustu bankans við kaup á miðum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum geta sótt þá í útibúum Íslandsbanka dagana 15. til 24. júlí. Þetta á einnig við um þá sem keyptu miða af www.dalurinn.is og völdu að sækja hann í útibúum Íslandsbanka. Framvísa verður kvittun af www.dalurinn.is og skilríkjum. […]

Eyjamenn veðurtepptir í Færeyjum

Eyjamenn eru veðurtepptir í Færeyjum. ÍBV lagði HB að velli í Þórshöfn í gær og á sunnudaginn leika Eyjamenn gegn Þór á Akureyri. Næsta fimmtudag er svo komið að Rauðu Stjörnunni og þannig verður það næstu vikur hjá ÍBV, tveir leikir í viku. (meira…)

Margrét Lára losnaði við fortíðardrauga með markinu í gær

Margrét Lára Viðarsdóttir tryggði Íslandi eitt stig gegn Norðmönnum á EM í gær. Markið hafði gífurlega mikla þýðingu fyrir íslenska liðið, sem náði þar með í sitt fyrsta stig á stórmóti. En markið hafði ekki síður mikla þýðingu fyrir Margréti sjálfa sem losnaði við fortíðardraug frá síðasta stórmóti, þegar hún klikkaði á vítaspyrnu í gegn […]

Tækifæri fyrir okkur alla að sanna okkur á hærra leveli

Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði ÍBV, segir það léttir að vera komnir áfram í Evrópudeildinni en liðið vann 1-0 sigur á HB í kvöld. Eiður segir liðið stefna enn hærra en leikurinn var ekkert sem kom honum á óvart. „Þeir komu mér ekkert á óvart, þegar þeir fengu boltann héldu þeir honum vel aftast og við […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.