Nú er komin fram í dagsljósið skýrsla Vegagerðarinnar um umferðaspá milli lands og Eyja næstu tvo áratugina. Hún er vægast sagt frábær fyrir okkur sem byggjum þennan bæ. Stöðug aukning svo langt sem spáin nær, eða kannski réttara sagt – stöðugt meiri eftirspurn eftir að komast til Eyja.
Samkvæmt líklegustu spá skýrslunnar má reikna með strax árið 2016 verði farþegar 440.000 og árið 2022, 540.000 og enn er spáð aukningu því lokaár spárinnar (2032) er reiknað með að flutningsþörfin sé komin uppí 740.000 farþega.
Hvíslað er um að gott hefði verið að stýrihópurinn sem blés til Borgarafundar í Eyjum s.l föstudag hefði tekið þessa skýrslu með og farið yfir hana samhliða áformum um byggingu minna skips.
Krafa Eyjamanna hlýtur að vera sú, að úr því að búið er að byggja of litla höfn og til stendur að smíða of lítið skip sem passar í höfnina að fengið verði annað skip sem mun sigla á móti núverandi Herjólfi og síðan á móti nýrri ferju.
Gæti Baldur verið fýsilegur kostur í það – sleppa því að selja núverandi Herjólf og láta hann sigla á móti nýju skipi, eða bara smíða tvö skip?




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.