Barn læstist inni í bifreið

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið enda fjöldi fólks í bænum í tilefni af Pæjumótinu. M.a. þurfti lögreglan í tvígang að opna bifreiðar þar sem lyklar höfðu verið læstir inni í þeim. Í öðru tilvikinu var barn læst inni í bifreið en allt leystist þetta farsællega og engum varð meint af. […]
Logar fagna 50 ára afmæli í ár

Hljómsveitin Logar verður 50 ára í ár, var stofnuð árið 1964. Upphaflegir hljómsveitarmeðlimir voru Grétar Skaptason, Helgi Hermannsson, Henry A. Erlendsson, Hörður Sigmundsson og �?orgeir Guðmundsson. Árið 1967 gekk Hermann Ingi Hermannsson til liðs við sveitina. Sveitin náði strax miklum vinsældum í Vestmannaeyjum og spilaði um hverja helgi í Samkomuhúsinu, þar sem nú er Hvítasunnukirkjan. […]