Víkingur flutti 4.236 farþega milli Eyja og Landeyjahafnar

Á vef eyjafretta hefur áður komið fram að Herjólfur flutti 296.974 farþega milli lands og Eyja árið 2014. Samkvæmt heimildum útgerðar Víkings, flutti báturinn 4.236 farþega milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja á árinu 2014. Farþegafjöldi þessara tveggja útgerða er því yfir 300 þúsund talsins milli lands og Eyja á árinu. (meira…)
Grímuball Eyverja í Höllinni í dag

Grímuball Eyverja hefur í áratugi markað upphaf þrettándagleðinnar þangað sem börn og unglingar fjölmenna í flottum búningum. Er mikill metnaður lagður í búningagerðina og árangurinn oft frábær. Eyverjarnir auglýsa þetta sem diskó – grímuball Eyverja í Höllinni sem byrjar klukkan 14.00 og er til 15.30. Jólasveinninn mætir og aðrar fígúrur einnig. Verðlaun verða veitt fyrir […]
Sverrir tannlæknir látinn

Sverrir Einarsson, tannlæknir í Vestmannaeyjum og Reykjavík, lést á Landspítalanum mið vikudaginn 7. janúar, 87 ára að aldri. Sverrir fæddist í Reykjavík 20. nóvember 1927. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1949 og útskrifaðist sem tannlæknir frá Háskóla Íslands 1955. Á árunum 1966 til 1967 var hann við nám í Kaupmannahafnarháskóla og kynnti sér […]
Herjólfur siglir í dag til �?orlákshafnar

Herjólfur siglir til �?orlákshafnar í dag samkvæmt áætlun. Brottför er frá Vestmannaeyjum 08:00 og 15:30 og frá �?orlákshöfn 11:45 og 19:15, segir í tilkynningu Herjólfs. (meira…)
Eldingu laust niður við spennuvirki

Rafmagnslaust var víða á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum í margar klukkustundir í gærkvöldi og nótt eftir að eldingu laust niður í spennuvirki, skömmu fyrir klukkan ellefu. Rafmagn fór af í Rangárvallasýslu allt austur að Vík í Mýrdal í Austur-Skaftafellssýslu. Rafmagn er nú aftur komið á að lokinni viðgerð, samkvæmt því er fram kemur á vef […]