Tom Even Skogsrud til ÍBV

Knattspyrnuráð ÍBV hefur gengið frá tveggja ára samningi við norska leikmanninn Tom Even Skogsrud. Hann er 21 árs og á leiki með yngri landsliðum Noregs. Hann kom til reynslu hjá ÍBV í lok janúar og lék þá tvo leiki með liðinu. Félagið og leikmaðurinn voru bæði ánægð með það sem aðilar höfðu fram að færa […]
ÁTVR komið í undanúrslit

Á sjónvarpsstöðinni ÍNN er þessar vikurnar háð spurningakeppni milli hinna ýmsu átthagafélaga. Átthagafélag Vestmannaeyinga á Reykjavíkursvæðinu ÁTVR, er með lið í keppninni hefur gengið ágætlega, er komið í undanúrslit, en þau fara fram í Breiðfirðingarbúð, Skeifunni 14 í Reykjavík, fimmtudaginn 5. mars kl. 20.00. Ástæða er til að hvetja alla sem aðstæður hafa, að mæta […]
Loðnuvertíðin hætt að koma á óvart

Jæja enn ein brælan mætt á svæðið með öllum sínum þunga. Ágætis dagur í gær á miðunum, enduðum með um 1.000 tonn eftir að hafa fengið um 100 tonn hjá Tasilaq (gamla Guðmundi VE29) en í morgun náðum við aðeins að kasta einu sinni áður en brælan skall á og uppskárum við um 100 tonn. […]
Eyjafréttum og Herjólfi seinkar

Enn á ný er Kári í jötunmóð. Meðalvindhraði á Stórhöfða er 28 metrar kl. 16.00 og hviður hafa farið í 36 metra. Seinkun verður á komu Herjólfs í dag, hann siglir nú á 7 mílna hraða og verður kominn til Eyja uppúr kl. 17.00. Eyjafréttir eru um borð í Herjólfi og því fyrirsjáanlegt að einhver […]
Atvinnumál í Eyjum á krossgötum

Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í vikunni, fjallaði Elliði Vignisson, bæjarstjóri um stöðu og þróun atvinnumála í Vestmannaeyjum. Sagði hann að þann 11. febrúar 2015 hefði búafjöldi í Vestmannaeyjum verið 4.270 manns. Karlmenn eru 2.220 (52%) og konur eru 2.050 (48%). Vestmannaeyjabær er 12. fjölmennasta sveitarfélagið á Íslandi en næststærsti byggðakjarni utan áhrifasvæðis höfuðborgarinnar. Í Vestmannaeyjabæ […]
Alþjóðlegur bænadagur kvenna haldinn í Vestmannaeyjum 6. mars 2015

Konur úr kristnum kirkjudeildum ætla að hittast við Landakirkju og fara þaðan kl. 17.00 í bænagöngu. Beðið verður á leiðinni fyrir málefnum bæjarins og öðrum bænarefnum. Að göngu lokinni verður samvera kl. 18.00 í Stafkirkjunni. Bænarefnin koma frá Bahamaeyjum þetta árið og er orðalag Bahamakvenna litríkt og djúpt. Efnið allt er einstaklega áhugavert. Sérstök bænarefni […]