Frystigeymsla Ísfélagsins að rísa

Frystigeymsla sem Ísfélagið er að byggja við Friðarhöfn er að koma upp úr jörðinni eftir jarðvegsvinnu og byggingu á grunni. �?að er byggingafyrirtækið Steini og Olli sem sér um framkvæmdir og reis fyrsta grindin í dag. Frystigeymslan á verða tilbúin um mitt ár. (meira…)

Í kvöld eftir kl. 18 verður dósasöfnun Skólalúðrasveitarinnar

Vegna rysjóttrar tíðar gafst ekki möguleiki til að bera út tilkynningu eins og vant er en við ætlum engu að síður að grípa tækifærið á milli storma og safna í kvöld. Við erum að safna í ferðasjóð vegna ferðar í sumar á viku tónlistarhátið á Spáni. Við verðum á ferðinni eftir kl.18. Ef veður leyfir […]

Sighvatur Bjarnason VE fékk á sig brot og gluggi brotnaði í brú

Rétt fyrir hádegi fékk loðnuskipið Sighvatur Bjarnason VE á sig brot þar sem skipið var út af Grindavík á leið á loðnumiðin fyrir vestan. Rúða brotnaði í brú og sjór komst í tæki en engi slys urðu á áhöfn. Sighvatur er nú á leið til �?orlákshafnar þar sem gert verður við það sem skemmdist. �??�?etta […]

Orlof húsmæðra út í nafni jafnréttis

Bæjarráð hvatti Alþingi á fundi sínum í síðustu viku mjög eindregið til að afnema lög um orlof húsmæðra og tekur þar með undir samþykkt bæjarstjórnar Vestmannaeyja á kvenréttindadaginn 19. júní 2008. Bæjarráð telur að lög um að orlofsnefndir skipuleggi orlof húsmæðra hver í sínu umdæmi og sjái um rekstur orlofsheimila á kostnað bæjarins sé tímaskekkja. […]

Íslendingar voru ekki búnir til í spítóskílu með sand í rassgatinu

�??Hvaða aumingjaskapur er þetta í okkur að kvarta stanslaust yfir þessu blessaða veðri. Við búum nánast á norðurhjara veraldar og vælum yfir veðri,�?? segir Ágúst Halldórsson, vélstjóri á aflaskipinu Álsey VE á Fésbókarsíðu sinni í gær. Endar hann með að hrósa áhöfninni á Kap II VE að komast heim með fullfermi í gær í baráttu […]

Árekstrar á hættulegum gatnamótum

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í liðinni viku og þá mest í kringum umferðarmálin. Helgin fór ágætlega fram en einn fékk að gista fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar á ölvunarakstri. �?rjú umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í liðinni viku og áttu sér öll stað á gatnamótum þar sem stöðvunarskylda er. Tvö af þessum óhöppum voru […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.