Dísa og Galileo 1000 í Landeyjahöfn – �?víst um opnun

Dýpkunarskipin Dísa og Galileo 2000 vinna nú að dýpkun Landeyjahafnar. Dísa kom í höfnina í gær og belgíska skipið Galileo í morgun. �??Ef veður helst stillt gætu þau náð þessu á fjórum dögum�??, sagði Sigurður Áss Grétarsson framkvæmdastjóri Siglingasviðs Vegagerðarinnar við R�?V. . �??Langtímaspáin vakti með okkur vonir um að Herjólfur gæti farið um höfnina […]

VSV- Framkvæmdir við uppbyggingu uppsjávarhúss hafnar

Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. samþykkti á síðasta fundi sínum að hefja framkvæmdir við uppbyggingu nýs uppsjávarfrystihúss, mjöl,- og frystigeymslu ásamt tveimur hráefnistönkum. Byggingarfélagið Eykt hf. mun sjá um byggingarframkvæmdir og er fyrsta verkið hafið, bygging uppsjávarfrystihússins. Fyrsti hluti verksins er niðurrif gamallar bræðsluþróar og hófust framkvæmdir í morgun en þar mun síðar rísa mótorhús sem þjóna […]

�?gisdagurinn

�?gisdagurinn verður haldinn næstkomandi laugardag, 27.febrúar. �?ar hefur meistaraflokkar karla og kvenna í handbolta hafa skorað á liðsmenn �?gis í Boccia. Fjörið verður í gamla sal íþróttamiðstöðvarinnar og kostar litlar 500kr inn. Frammi verður kökubasar þannig að allir geta farið heim með gómsætar kræsingar eftir að hafa horft á æsispennandi keppni en einnig verður hægt […]

Hjartabilunarverkefni – tilraunaverkefni á heilsugæslunni á Selfossi

Hjartabilun er ástand sem skapast þegar hjartavöðvinn hefur ekki getu til að dæla nægu blóði um líkamann. Skerðing á blóðflæði veldur einkennum eins og t.d andþyngslum, þreytu og minnkuðu úthaldi. Einstaklingar með hjartabilun eru stór sjúklingahópur, en talið er að 10-20% 70-80 ára fólks séu með hjartabilun. Göngudeild Hjartabilunar hefur verið starfrækt frá árinu 2004 […]

Forsala og fyrstu hljómsveitirnar kynntar

Hljómsveitirnar Agent Fresco, �?lfur �?lfur og rapparinn Emmsjé Gauti koma fram á �?jóðhátíð 2016 en þetta eru fyrstu listamennirnir sem kynntir eru til leiks á þessa �?jóðhátíð sem er númer 142. �?etta er í annað sinn sem hljómsveitin �?lfur �?lfur kemur fram en dúettinn kom fram þar árið 2012. �??Mér líst alveg heví vel á […]

Náttúruparadísin Langa

Mikið hefur verið rætt og ritað um aðgengið að Löngunni eftir að gömul hugmynd um að bora göng í gegnum neðri Kleifar í Heimakletti kom aftur upp á yfirborðið. Sumir sjá þessum göngum allt til foráttu og fullyrða að náttúruperla og fuglalíf verði eyðilagt með auðveldara aðgengi en öðrum finnst þetta bara skemmtilegt og þess […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.