Við lækkum verðlag, skatta og gjöld. Við hækkum laun og kaupmátt
5. október, 2017

Ég er vanur því að hlutirnir gangi  í kringum mig, en þegar ég settist á þing vorið 2013 fannst mér allir hlutir ganga hægt fyrir sig.  Smátt og smátt lærðist taktur þingsins og nú þegar ég lít til baka er ánægjulegt að hafa verið þátttakandi í mörgum góðum verkum. Ánægjulegast er að sjá hvernig raunverulegur ávinningur hefur verið í aukinni velferð og bættum kjörum fólks.

Frá því að Sjálfstæðisflokkurinn settist í ríkisstjórn  2013 hefur ríkissjóður skilað afgangi sem nýttur hefur verið til að greiða niður lán ríkisins um hundruð milljarða með samsvarandi lækkun vaxtagreiðsla ríkissjóðs. Lægstu laun voru 191.000 kr. á mánuði 2013 en verða 300.000 kr. í maí 2018, en 6 mánuðum fyrr eða um næstu áramót verða lægstu bætur einstaklings í hópi eldri borgara 300.000 kr. eins og kröfur þeirra voru. Þá kemur fram að nærri helmingur ríkisstarfsmanna eða 43% þeirra eru með 800.000 kr. í laun á mánuði eða meira og þar af 13% með yfir eina milljón á mánuði eða meira. Á sama tíma hefur kaupmáttur launa aukist og nú er svo komið að í fyrsta skipti er staðfest að verðlag lækkar á vörum til neytenda. Afnám tolla og vörugjalda á verðlag hefur að mestu skilað sér til neytenda samkvæmt skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ sem nýlega var birt.

Lækkum skatta og gjöld

Það er í raun ótrúleg staða sem birtist fólki núna þegar við rifjum hana upp til að minna okkur á hvað staða heimilanna hefur batnað og við finnum það öll á eigin skinni. Vörugjöld voru afnumin 2015 og lækkuðu tekjur ríkissjóðs um 6.5 milljarða. Tollar á öllum vörum öðrum en búvörum voru afnumdir í tveimur áföngum áramótin 2016 og 2017 og var áætlað að tekjur ríkisjóð lækkuðu um 6 milljarða króna en vegna aukinna ráðstöfunartekna heimilanna með tilheyrandi útgjaldaaukningu  lækkuðu tekur ríkissjóð óverulega. Þá var hærra þrep virðisaukaskatts lækkað 2015 úr 25.5% í 24% og er vaskurinn þá sá lægst í okkar helstu samanburðarlöndum. Neðra þrep skattsins hækkaði á sama tíma úr 7 í 11%.

Þá var neðra þrep tekjuskatts einstaklinga lækkað  og milli þrepið afnumið. Við getum haldið áfram að telja niður, stimpilgjöld af fyrstu íbúðakaupum felld niður og tekið upp skattleysi séreignasparnaðar vegna íbúðakaupa sem nýta má til að greiða inn á höfuðstól verðtryggðra lána eða inn á afborganir óverðtryggðra lána.

Þá hafa vextir á lánum til íbúðakaupa lækkað frá árinu 2013 úr 5% í það sem best gerist hjá lífeyrissjóðunum 2.8% og verðbólgan hefur verið innan verðbólgumarkmiða Seðlabanka Íslands allt þetta tímabil og komið böndum hækkun verðtryggingar.

Tryggingagjaldið hefur lækkað úr 7,69% í 6,85% og við sjálfstæðismenn viljum áfram lækka gjaldið sem þó stendur undir mikilvægum velferðarpóstum í samfélaginu eins og fæðingarorlofi.

Þá hefur frítekjumark  fjármagnstekna hækkað, frítekjumark húsaleigutekna hækkað (aðeins greiddur skattur af 50% í stað 70% tekna), Eignarskattar lagðir niður sem var óréttlátur skattur sem fyrst og fremst kom niður á eldra fólki og þá var skattafsláttur vegna hlutabréfakaupa tengdum nýsköpun felldur niður.

Stöðugleiki

Frá vorinu 2013 geng ég og við þjóðin öll öðru sinni til ótímabærra kosninga.  Þær leggjast vel í mig vegna þess að þær snúast um að halda áfram á þeirri braut sem ég fór stuttlega yfir í þessari grein og er grunnurinn að þeirri auknu velferð sem við búum við í landinu.

Valið í kosningunum 28. október nk. snýr um að viðhalda þeim stöðugleika sem er í landinu, treysta þá kaupmáttaraukningu og hagvöxt sem við búum við, eða skattahækkanir og innistæðulaus loforð vinstri flokkananna sem standast ekki skoðun.

 

Ásmundur Friðriksson, alþingismaður

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst