Kia Stonic verður frumsýndur hjá Nethamri, Garðavegi 15 í Vestmannaeyjum á morgun laugardag
Kia Stonic er sportlegur borgarjepplingur, fáanlegur með tvílitri yfirbyggingu og mögulegt er að velja litasamsetningu sem er löguð að smekk hvers og eins. Stonic er með hátt undir lægsta punkt sem eykur útsýni og aðgengi er þægilegt. Stonic er hlaðinn staðalbúnaði og má þar nefna AEB árekstrarvörn, 17” álfelgur, hita í stýri og sætum, bakkmyndavél og sjálfvirkri loftkælingu.
Ásamt Kia Stonic verður hin breiða lína Kia til sýnis og reynsluaksturs.