Stelpurnar eru komnar upp í annað sæti Olís­deild­ar kvenna í hand­bolta eft­ir 27:22, útisig­ur á Stjörn­unni í dag. Staðan í hálfleik var 10:7, ÍBV í vil og náði Stjarn­an aldrei að jafna í seinni hálfleik.

Kristrún Hlyns­dótt­ir og Arna Sif Páls­dótt­ir áttu góða leiki fyr­ir ÍBV og skorðu fimm mörk hvor og Ester Óskars­dótt­ir, Greta Kavaliu­skaite og Sunna Jóns­dótt­ir skoruðu all­ar fjög­ur mörk. Með sigr­in­um fóru stelpurnar upp í annað sæti og eru með 11 stig, eins og topplið Vals.