Í kvöld kl. 20.30 verða Eyjakonurnar, Silja Elsabet Brynjarsdóttir óperusöngkona og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanónleikari með tónleika í stóra salnum í Hvítasunnukirkjunni sem þær kalla, Oddgeir og óperur.
Silja Elsabet, mezzosópran hlaut sína grunn tónlistarmenntun í Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Eftir stúdentspróf hóf Silja nám við Söngskólann í Reykjavík og lauk áttunda stigi árið 2015. Síðastliðin fjögur ár hefur Silja stundað nám við Royal Academy of Music London og mun hljóta bachelor gráðu í tónlist 10. júlí ásamt kennararéttindum.
„Ég er svo heppin að fá að hoppa yfir meistaragráðuna og fer beint í óperudeild skólans. Fæ ég að syngja á tónleikum og í óperum og má líta á þetta sem einskonar starfsnám. Það hefur ekki gerst áður að nemandi hafi fengið að hoppa yfir masterinn og er þetta mikill heiður fyrir mig,“ segir Silja Elsabet sem ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í sínu fyrsta verkefni.
„Það er sjálf Töfraflautan eftir Mozart þar sem ég syng Þriðju dömu. Ég hlakka mikið til og það sama á við um tónleikana á fimmtudaginn. Ég var svo heppin að fá Helgu Bryndísi í lið með mér. Hún er ekki bara frábær undirleikari, heldur líka frábær manneskja.“
Fyrir hlé syngur Silja Elsabet óperuaríur sem hún heldur mikið upp á. „Allt lög sem ég heillaðist af við fyrstu hlustun. Langar mig til að leyfa Vestmannaeyingum að heyra þau. En engin lög hafa haft eins mikil áhrif á mig og Oddgeirslögin og það hefur lengi verið draumurinn að halda tónleika með lögunum hans. Nú fær Eyjafólk og gestir tækifæri til að fá smjörþefinn af því. Helga Bryndís er dásamlegur undirleikari og Eyjakona eins og ég og Oddgeirslögin snerta okkur báðar. Því ætlum við að koma til skila og ég veit að það tekst,“ sagði Silja Elsabet sem líka kemur fram á stóru tónleikunum á föstudagskvöldið.
Með námi sínu í Reykjavík söng Silja sem einsöngvari með kór Langholtskirkju og Óperukór Reykjavíkur, tók þátt í óperuuppfærslum og tónleikum á vegum skólans.
Tónleikar utan skóla eru m.a. Eyjatónleikar í Hörpu, Frostrósartónleikar og einsöngstónleikar.
Síðastliðið haust fór fram keppni á vegum Sinfóníuhljómsveitar- og Listaháskóla Íslands. Þar var Silja ásamt þremur öðrum ungum einleikurum valin til að flytja verk með hljómsveitinni. Fékk hún góðar viðtökur og frábæra dóma. Silja hefur fengið mörg tækifæri í London má þar helst nefna óperusenur, ljóðahringi, skandinavíska tónleika og íslenska tónleika.
Helga Bryndís Magnúsdóttir hóf tónlistarnám sitt í Vestmannaeyjum hjá Guðmundi H. Guðjónssyni því næst fór hún í Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hún lauk einleikara-og kennaraprófi árið 1987. Hún stundaði síðan framhaldsnám við Konservatoríið í Vínarborg og Sibeliusarakademíuna í Helsinki. Hún hefur leikið fjölmörg einleiksprógrömm, m.a. í Salnum í Kópavogi, á Listahátíð í Reykjavík og um allt land. Hún hefur auk þess leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, píanókonserta eftir Ravel, Poulenc, Brahms, Gershwin og Bach. Hún hefur leikið mikinn fjölda tónleika með fremstu söngvurum og hljóðfæraleikurum landsins og hljóðritað marga geisladiska í samstarfi við aðra. Fyrir tveimur árum síðan lék hún einleiksverk eftir Robert Schumann inná geisladisk.
Hún starfar sem píanóleikari við Listaháskóla Íslands og Tónlistarskólana í Kópavogi og Reykjanesbæ.
Fleiri fréttir af Goslokahátíðinni og 100 ára afmæli Vestmannaeyjabæjar má lesa hér.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst