Val á fæðingarstað

Sigrún Kristjánsdóttir, yfirljósmóðir HSU.

Töluverðar breytingar hafa orðið á fæðingarhjálp á Íslandi síðustu áratugina. Fæðingastöðum hefur fækkað og þjónustustig breyst. Árið 2010 var sólahringsskurðstofuþjónustu hætt  við Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) á Selfossi og á sama tíma breyttist þjónustustigið þar. Árið 2013 var svo sólahringsþjónustu við fæðingadeild Vestmannaeyja hætt.   Árið 2007 gerði Landlæknisembættið leiðbeiningar um val á fæðingastað og þar er fæðingastöðum á landinu skipt niður frá A-D.

A-fæðingastaður: Landspítali Háskólasjúkrahús, sérhæfð deild fyrir áhættumæðravernd og áhættufæðingar. Vökudeild frá 22 vikum.

B-fæðingastaður: Sjúkrahúsið á Akureyri, sérhæfð deild fyrir áhættumæðravernd og áhættufæðingar. Vökudeild frá 34 vikum.

C- fæðingastaður: Akranes, Ísafjörður, Neskaupsstaður.  Sólahringsþjónusta á skurðstofu, millistærð af fæðingadeild.

D- fæðingastaður: Selfoss, Vestmannaeyjar, Keflavík, heimafæðingar. Fæðingadeild á heilbrigðisstofnun þar sem konum í eðlilegri meðgöngu og fæðingu eiga þess kost að fæða. Ekki skurðstofuþjónusta. Heimafæðingar eru einnig flokkaðar sem D fæðingastaður.

Á meðgöngunni er það hlutverk ljósmæðra að meta það hvort konur séu í eðlilegri meðgöngu eða hvort einhverjir áhættuþættir séu til staðar og þá hvort það séu áhættuþættir sem hafa áhrif á það hvar kona megi fæða.  Í leiðbeiningunum frá Landlækni þá eru helstu ástæður þess að konur eiga þess ekki kost að fæða á fæðingastað D (HSU) eftirfarandi: Langvarandi sjúkdómar, vaxtarseinkun barns, fæðing fyrir 37 vikna meðgöngu eða eftir 42 vikna meðgöngu, ef framkalla þarf fæðingu, ef kona hefur áður farið í keisaraskurð eða ef blætt hefur óeðlilega í fyrri fæðingu.

Einnig getur þurft að flytja konu í fæðingu ef upp koma vandamál í fæðingunni og eru helstu ástæður þessi: Fósturstreita, óeðlileg blæðing, þörf á mænurótardeyfingu, hiti í fæðingu eða legvatn farið í meira en 24 tíma og sótt ekki góð.

Nýjustu rannsóknir hafa sýnt að konur sem eru í eðlilegri meðgöngu og fæðingu eru með betri/jafngóða  útkomu úr fæðingum ef þær fæða á ljósmæðrarekinni einingu eða heima  heldur en ef þær fæða á hátæknisjúkrahúsi.

f.h. Heilbrigðisstofnunar Suðurlands

Sigrún Kristjánsdóttir, yfirljósmóðir HSU.