Í anddyri Þekkingarsetursins við Ægisgötu tvö hefur Farsæli verið komið fyrir, einum elsta bát landsins og líklega merkasta safngrip Sagnheima.

Öll vertíðaskip Eyjamanna frá árabátaöldinni sem tók yfir 1000 ár eru nú löngu úr sögunni en segja má að Farsæll komist næst þeim. Farsæll er aldursfriðaður, smíðaður 1872, en Ívar Gunnarsson bátasmiður hefur sinnt honum eftir leiðbeiningum sérfræðinga á sviði fornminja. Sæþór Vídó og Bragi Magnússon sáu um hönnun sýningar en fjölmargir aðrir hafa einnig lagt hönd á plóginn. Verkefnið var styrkt af Vestmannaeyjabæ og Safnaráði og er liður í 100 ára afmælishátíð Vestmannaeyjabæjar. Sýninin opnar klukkan 16:30 á morgun.