Róbert Sigurðarson hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV. Róbert hefur verið á láni hjá ÍBV síðustu 2 ár og sýnt flotta takta á þeim tíma. Hann er stór og sterkur leikmaður sem er sérstaklega sterkur varnarlega.

Nú hefur verið gengið frá félagaskiptum Róberts frá Akureyri (Þór) til ÍBV og er það mjög mikilvægt skref fyrir komandi leiktíð að tryggja okkur krafta Róberts.

Áfram ÍBV
Alltaf, alls staðar!