Hilmar Ágúst ráðinn aðstoðarþjálfari kvennaliðs ÍBV

Hilmar Ágúst Björnsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari hjá kvennaliði ÍBV. Hilmar verður Sigurði Bragasyni, sem ráðinn var á dögunum sem þjálfari liðsins, til aðstoðar. Hilmar þekkja flestir ÍBV-arar en hann hefur þjálfað í yngri flokkum félagsins frá árinu 2012. Á þeim tíma hefur hann þjálfað alla yngri flokka félagsins, allt frá handboltaskólanum og upp í […]

Dagskrá föstudags Þjóðhátíðar 2019

Það kennir ýmisaa grasa á dagskrá fyrsta dags Þjóðhátíðar 2019. Setningin hefst kl. 14.30 þar sem Þórlindur Kjartansson heldur hátíðrræðu. Latibær, Jói Pé og Króli ásamt Fimleikafélaginu Rán sjá um barnaskemmtunina sem hefst á Tjarnarsviði kl. 16.00. Boðið er upp á nýjung í Dalnum þetta árið, Ölgarðinn. Þar verður hægt að setjast fá sér einn […]

Mikið stuð á Húkkaraballinu – myndir

Hið alræmda Húkkaraball fór fram í gær hefðinni samkvæmt. Líkt og undanfarin ár fer ballið fram í portinu á bakvið Strandveg 50. Vel var mætt og stemningin mikil. Að þessu sinni eru það Daystar, Yung Nigo, 24/7, Ízleifur, GDRN, Huginn, Hr. Hnetusmjör, ClubDub og DJ Egill Spegill sá um stuðið. Óskar Pétur sá hins vegar um […]

Tjaldborgin rís í Herjólfsdal – Myndir

Ein af skemmtilegri hefðum þjóðhátíðar eru Hvítu hústjöldin en þau setja mjög skemmtilega mynd á hátíðarsvæðið. Fyrsta hústjaldið virðist hafa komið til sögunnar árið 1908, en þá voru sælgæti og gosdrykkir seldir í fyrsta sinn. Hústjöld fóru að verða mjög áberandi um 1910 fyrstu þjóðhátíðunum var hústjöldunum ekki raðað upp eftir neinu sérstöku skipulagi, þó svo […]

Strætó fer 21 auka­ferð vegna þjóðhátíðar

Leið 52 hjá Strætó, sem geng­ur milli Reykja­vík­ur og Land­eyja­hafn­ar, mun aka 21 auka­ferð dag­ana 1.-5. ág­úst vegna þjóðhátíðar í Vest­manna­eyj­um. Fram kem­ur í frétta­til­kynn­ingu frá Strætó að auka­ferðirn­ar séu all­ar skipu­lagðar með áætl­un Herjólfs að leiðarljósi og er tíma­áætl­un­ina að finna hér. Ekki verður hægt að bóka sæti um borð fyr­ir fram og far­gjald er […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.