Sigurður með Heimaey vélarvana í togi

Sigurður VE er nú norð-austur af Langanesi með Heimaey VE í togi en Heimaey varð vélarvana við síldveiðar norður af landinu. „Já þetta er bara einhver bilun sem kemur betur í ljós þegar þeir koma í land”, sagði Eyþór Harðarson útgerðarstjóri hjá Ísfélaginu. Ekki stóð annað til en að draga skipið til Eyja og á […]
Frábærir tónleikar á áttatíu ára afmæli Lúðrasveitarinnar

Lúðrasveit Vestmannaeyja hélt sína árlegu Styrktarfélagatónleika í stóra sal Hvítasunnukirkjunnar á laugardaginn. Tónleikarnir voru extra veglegir í ár þar sem sveitin fagnar 80 ára afmæli. Lúðrasveitir hafa verið í Eyjum frá því stuttu eftir aldamótin 1900 en sú fyrsta var stofnuð árið 1904, en fyrstu störfuðu stutt og þrjár fyrstu lögðu upp laupana þar til […]
Eyjamenn á Ólympíuleikunum í Berlín 1936 – Myndir

Hörður Baldvinsson, safnstjóri Sagnheima flutti skemmtilegt erindi í Einarsstofu á í gær og sagði frá för fimm Eyjamanna á Ólympíuleikana í Berlín 1936. Þetta var mikil ævintýraferð fyrir 50 Íslendinga, þar af fimm Eyjamenn að koma úr fásinninu á Íslandi til Þýskalands sem þá var í miklum blóma. Þeir sem kepptu frá Eyjum voru Sigurður […]
Björgunarfélagið kallað út vegna óveðurs – Myndir

Klukkan tíu mínútur yfir tólf í nótt var Björgunarfélag Vestmannaeyja kallað út vegna óveðursaðstoðar. Sólskáli var að fjúka við Illugagötu. Vel gekk að koma í veg fyrir að alvarlegt tjón hlytist af veðrinu. Vindhraði á stórhöfða í nótt náði 36 m/s og náði 47 m/s í hviðum. (meira…)