Laust eftir hádegi tilkynnti áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar að búið væri að finna lík í Núpá við Fossgil. Líkið er talið vera af piltinum Leif Magnus Grétarssyni Thisland sem saknað hefur verið frá því á miðvikudagskvöld. Aðstandendur hans voru upplýstir, sem og norska sendiráðið á Íslandi. Nú rétt fyrir klukkan 15:00, var lögreglan upplýst um að björgunaraðilar á vettvangi væru búnir að ná líkinu upp úr ánni og var það flutt til Akureyrar með þyrlu.

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra vill þakka öllum viðbragðsaðilum sem að þessari leit komu fyrir umfangsmikið og óeigingjarnt starf við mjög erfið leitarskilyrði.