Eins og svo margir þurfti Kvennfélagið Líkn að laga starfsemi að ástandinu í þjóðfélaginu og heiminum öllum og gátu ekki haldið hefðbundið Líknarkaffi í ár eins og áður. Þær fórum þá leið að forselja kaffi til fyrirtækja í bænum og voru viðtökur góðar.
Á facebook síðu félagsins er sagt frá því að það voru 64 fyrirtæki sem fengu kaffi hjá Líkn í ár eða 1154 manns. “Fyrir það þurftum við fullt af tertum og það voru gerðar 77 minni rjómatertur, 34 stórar rjómatertur, 90 rúllubrauð, 26 stórar brauðtertur, 102 súkkulaðikökur og 10 skyrtertur. Það voru 47 konur sem bökuðu og græjuðu kaffið í ár. Við fengum aðstöðu í Akóges í ár og þurftum við gott skipulag fyrir afhendingu á kaffinu. Fyrirtækin fengu úthlutað tíma til að sækja sitt kaffi svo þessu yrði vel dreift og við gætum viðhaldið öllum sóttvörnum og gekk það mjög vel.
Karl Kristmanns heildverslun styrkti okkur með rúllubrauðum og góðri aðstoð i geymslu og skutli, Akóges lánaði okkur aðstöðu til að dreifa kökunum og einnig fengum við styrk frá MS í formi rjóma.
Við viljum þakka fyrirtækjum í bænum sem keyptu af okkur kaffi í ár og styrktu okkur og öllum þeim konum sem láta þetta verða af veruleika ár hvert.
Gleðileg jól
Kvenfélagið Líkn

Eins og svo margir þurftum við að aðlaga okkar starfsemi að ástandinu í þjóðfélaginu og heiminum öllum og gátum við ekki…

Posted by Kvenfélagið Líkn on Mánudagur, 7. desember 2020