Samtök atvinnulífsins eru nú á hringferð í kringum landið og hitta félagsmenn á súpufundum. Í dag mánudaginn 7. júní er förinni heitið til Vestmannaeyja. Fundurinn verður haldinn á Hótel Vestmannaeyjar og stendur frá klukkan 12 til 13.30.

Nauðsynlegt er að skrá mætingu hér, en félagsmenn eru hvattir til þess að mæta og þiggja hádegisverð og eiga spjall um framtíðina. Efni fundanna verður uppbygging íslensks atvinnulífs í kjölfar kórónukreppunnar. Samtal um atvinnulífið, tækifæri og veginn framundan. Fulltrúar SA hlakka til að hitta stjórnendur og starfsfólk öflugra fyrirtækja á landsbyggðinni.