Sigurgeir Svanbergsson stefnir á Eyjasund í lok júli, þegar hann syndir frá Vestmannaeyjum upp í Landeyjasand. Undirbúningur er nú í fullum gangi. Eyjasundið er til styrktar Barnaheillum en allt safnað fé mun renna til stuðnings börnum sem búa á
átakasvæðum. Leiðin sem hann mun synda er rúmlega 12 kílómetrar.

Sigurgeir er enginn nýgræðingur þegar kemur að sjósundi en árið 2021 synti hann þvert yfir Kollafjörð, frá Kjalarnesi yfir til Reykjavíkur. Sundið tók um 9 klukkustundir og var leiðin 12 kílómetrar. Sundið gekk ekki áfallalaust fyrir sig og lenti Sigurgeir í allskonar hindrunum.

Á leiðinni varð fylgdarbáturinn hans vélarvana og synti Sigurgeir því í hringi í klukkutíma og komst í kynni við nokkrar marglyttur. Á meðan beðið var eftir öðrum fylgdarbáti frá Hafsport breyttust straumar í firðinum og í kjölfarið missti hann dýrmætan tíma og lenti því í miklum mótstraumi. Allt er gott sem endar vel og komst hann syndandi í land í Bryggjuhverfi.

Börn á stríðshrjáðum svæðum þurfa þína hjálp
Fjöldi barna sem búa á átakasvæðum í heiminum hefur aukist mikið undanfarin ár en í dag býr eitt af hverjum sex börnum í heiminum eða 450 milljónir barna á átakasvæðum. Það er 5% aukning frá árinu á undan. Átök geta afleiðingar þeirra haft varanleg áhrif á börn, svo sem á líkamlega, tilfinningalega og vitræna heilsu. Börn á átakasvæðum þurfa aukinn sálrænan stuðning en talið er að um 85% barna á átakasvæðum þurfi virkilega á þeim stuðningi að halda. Einnig hafa átök áhrif á aðgengi barna að mat og hreinu vatni, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Aukin hætta er á því að börn sem búa á átakasvæðum missi úr námi eða neyðist til þess að hætta.

Barnaheill veita mannúðaraðstoð víða um heim til þess að mæta þeirri neyð sem ríkir á
átakasvæðum. Barnaheill hafa sett upp svokölluð Barnvæn svæði víða um heim þar sem börn á flótta geta fundið öruggt athvarf til þess að læra eða leika sér. Einnig fá þau sálfræðilegan stuðning frá starfsfólki Barnaheilla.
Styrktarsíða Eyjasundsins má finna hér:
http://sofnun.barnaheill.is
Nánari upplýsingar veitir Kolbrún Pálsdóttir verkefnastjóri kynningarmála í síma 8659098 eða [email protected]