Yfirlýsing frá formönnum innan Starfsgreinasambands Íslands vegna afsagnar Drífu Snædal forseta ASÍ:

Við undiritaðir formenn félaga innan Starfsgreinasambands Íslands viljum þakka fráfarandi forseta ASÍ fyrir farsælt og gefandi samstarf undanfarin 10 ár. Fyrst með flestum okkar sem framkvændastjóri SGS og síðustu fjögur ár sem forseti ASÍ.

Drífa hefur verið róttæk, sýnileg og fylgt áherslum Alþýðusambands Íslands mjög vel eftir og verið hreyfingunni til sóma á allan hátt.  Hún er ósérhlífin, vinnusöm og með ótrúlegum styrk hefur hún átt stóran þátt í brjóta ýmsa múra sem hefur skilað sér m.a. í bættum lífskjörum, einkum þeirra sem minnst hafa, auknu jafnrétti og betra samfélagi.

Jafnframt hörmum við þær aðstæður er urðu til þess að hún sá sig knúna til afsagnar. Það á enginn að þurfa að upplifa sig við þannig aðstæður á sínum vinnustað. Verkalýðshreyfingin á að vera fyrirmyndar vinnustaður og verður að koma í veg fyrir að starfsfólk hennar upplifi sig eins og Drífa gerði.

 

Arnar G. Hjaltalín

Björn Snæbjörnsson

Eyþór Þ. Árnason

Finnbogi Sveinbjörnsson

Guðmundur Finnbogason

Guðrún Elín Pálsdóttir

Halldóra S. Sveinsdóttir

Hrund Karlsdóttir

Magnús S. Magnússon

Vignir S. Maríasson

Þórarinn Sverrisson