Eyjamenn taka á móti FH í Bestu deildinni á morgun, sunnudag og er frítt á völlinn í boði Ísfélagsins. Það munar aðeins einu stigi á liðunum og má því búast við afar spennandi leik sem hefst klukkan 16.00.

Það er spáð bongóblíðu og viljum við sjá sem flest á vellinum að styðja við okkar menn. Grillið verður að sjálfsögðu á sínum stað og kaldir drykkir með

Áfram ÍBV!