„Ísfélagið er búið að veiða um 7.500 tonn af makríl þetta sumarið. Það hefur gengið illa síðustu tvær vikur að finna makrílinn en vonandi rætist úr því næstu daga,“ sagði Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins þegar rætt var við hann. Þá var Heimaey  að landa 600 tonnum á Þórshöfn. „Sigurður, Álsey og Suðurey eru í Smugunni að byrja veiðar við norsku línuna, sunnarlega. Við eigum eftir að veiða 10.000 tonn af okkar heimildum og reiknum með að hafa tíma framundir miðjan september til að klára það.“

Ísleifur landaði hjá Vinnslustöðinni í gær, rúmum 1000 tonnum. „Makrílveiðar hafa gengið nokkuð vel það sem af er vertíð. Þó er búið að vera frekar rólegt yfir makrílveiðum undanfarna daga og einhver kaldafýla á miðunum,“ sagði Sindri Viðarsson, framkvæmdastjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar.

„Skipin voru komin ansi norðarlega en eru núna komin aftur sunnar í Síldarsmuguna. Það er tveggja til þriggja sólarhringa stím á miðin. Hefur verið erfitt að halda uppi óslitinni vinnslu en það hefur hjálpað okkur mikið að vera með fjögur skip. Annars hefur vinnslan gengið vel en fiskurinn er misjafn í gæðum.“

En von er um betri tíð. Samkvæmt bráðabirgðaniður­stöðum ­leiðang­urs í síðasta mánuði er  magn og út­breiðsla mak­ríls í ís­lenskri land­helgi mun meiri en und­an­far­in tvö sum­ur.

„Það er ánægjulegt að leiðangur Hafró hafi komið svona vel út og að í lögsögunni sé talsvert magn af makríl. Það stemmir alveg við þær fréttir sem við höfum haft af vaðandi makríl og að makríll sé veiddur á stöng fyrir vestan. Það var sannarlega makríll hérna sunnan við Eyjar í júní þegar við fórum og prufuðum en hann var síldarblandaður og kannski ekki búinn að þétta sig mikið,“ sagði Sindri.

Mynd: Ísleifur að landa í gær.