Litla Skvísubúðin og Snyrtihorn Mæju Litla Skvísubúðin og Snyrtihorn Maju eru staðsett á Skólavegi 6. Skvísubúðin er með mikið af fallegum fatnaði á konur og börn. Vinsælustu merkin eru Kaffe, Culture og Freequent. Zhenzi er líka vinælt merki sem kemur í betri stærðum. Barnafatnaðurinn er ekki af verri endanum en þar má finna merki eins og Kids up og Minymo. Á næsta ári kemur vinsæla merkið, Fixoni. Nýjar vörur koma vikulega og er alltaf eitthvað nýtt og spennandi og mikið til af fallegum jólafatnaði á konur og börn. Snyrtihorn Mæju býður upp á alhliða snyrtingu sem hentar öllum. Snyrtihornið er einnig með fjölbreytt úrval af snyrtivörum og öðrum förðunarvörum sem er ekki slæmt í jólapakkann.