Póley er lífstíls -og gjafavöruverslun staðsett á besta stað við Bárustíg. Í Póley færðu góða og persónulega þjónustu við val á gjöfum fyrir þig og þína og hjálp við að finna fallegan hlut inná heimilið.

Það er mikið um íslenska hönnun í Póley og sem dæmi má nefna er fatnaðurinn frá Farmers Market til hjá þeim, skartgripir frá Sign og Mjöll, rúmföt frá Ingibjörgu Hönnu, tækifæriskort frá grafískum hönnuðum, snyrtivörur frá Angan skyncare sem allar eru unnur úr íslenskri náttúru og svo margt fleira. Mikið er um fallega gjafavöru ásamt ilmkertum og hlutum fyrir heimilið. Í Póley er hægt að frá talsvert úrval fyrir litla fólkið hvort sem það er dót eða fatnaður.