Íslandsmót golfklúbba í 1. deild karla fer fram á Jaðarsvelli á Akureyri dagana 27.-29. júlí 2023. Karlasveit GV keppir nú í 1. deild. Fyrsta umferð hófst nú í morgun þar sem leikið er gegn GR. 2. umferð fer svo fram um 15:00 í dag gegn GM.

Í þessari frétt er að finna upplýsingar um rástíma, stöðu og úrslit. Staðan í leikjum verður uppfærð reglulega í umferðum á ca. 6 holu fresti. Smelltu hér til að nálgast stöðu leikja og allar umferðir í einu skjali.

Alls eru átta lið sem keppa um Íslandsmeistaratitil golfklúbba 2023. Liðunum er skipt í tvo fjögurra liða riðla. Hvert lið leikur þrjá leiki í riðlakeppninni. Í hverri viðureign eru leiknir tveir fjórmenningsleikir og þrír tvímenningsleikir. Tvö efstu liðin úr hvorum riðli komast í undanúrslit.

A-riðill:
GKG, GA, GOS, GK.
Efsta liðið í A-riðli leikur í undanúrslitum gegn liðin nr. 2 úr

B-riðill:
GR, GM, GS, GV.
Efsta liðið úr B-riðli leikur í undanúrslitum gegn liði nr. 2 úr A-riðli.

Neðsta liðið í 1. deild karla fellur í 2. deild. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar hefur titil að verja í karlaflokk í efstu deild. Fyrst var leikið á Íslandsmóti golfklúbba í karlaflokki árið 1961. Frá þeim tíma hafa 6 klúbbar fagnað þessum titli.

Golfklúbbur Reykjavíkur hefur sigrað oftast eða 25 sinnum, þar á eftir kemur Golfklúbburinn Keilir með 15 titla, Golfklúbbur Akureyrar er með 8 titla, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar er með 8, Golfklúbbur Suðurnesja 3, og Golfklúbbur Mosfellsbæjar er með 3 titla, þar af 2 þegar klúbburinn var Golfklúbburinn Kjölur.