Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsafriðunarsjóði fyrir árið 2024.

Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra húsa og
mannvirkja, sbr. reglur um úthlutun úr húsafriðunarsjóði nr. 577/2016. Veittir verða styrkir
úr sjóðnum til:
• viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og mannvirkjum, ásamt
öðrum húsum og mannvirkjum, sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða
listrænt gildi.
• byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningar húsa og mannvirkja, og
miðlunar upplýsinga um þær.
• sveitarfélaga til að vinna tillögur að verndarsvæði í byggð, í samræmi við ákvæði
laga nr. 87/2015 og reglugerðar nr. 575/2016 um verndarsvæði í byggð og til
verkefna innan verndarsvæða í byggð.

Umsóknir eru metnar m.a. með tilliti til varðveislugildis, t.d. vegna byggingarlistar,
menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs ástands ásamt gildis fyrir varðveislu
byggingararfleifðarinnar.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna á vef
Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is.

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2023. Umsóknir sem berast eftir að
umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun styrkja.

Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu viðunandi af hendi leyst og í
samræmi við innsend umsóknargögn. Bent er á leiðbeiningarit um verndarsvæði í byggð og
um viðhald og endurbætur friðaðra og varðveisluverðra húsa sem finna má á vef
Minjastofnunar Íslands (undir Leiðbeiningar). Í Húsverndarstofu í Árbæjarsafni er veitt
endurgjaldslaus ráðgjöf um gerð styrkumsókna og viðhald og viðgerðir á gömlum húsum (sjá nánar á www.husverndarstofa.is)