„Það hafa engar umræður um að skrá félagið á markað átt sér stað meðal hluthafa,“ sagði Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, Binni, þegar hann var spurður um sögusagnir um að félagið væri á leið á markað. Eins hefur flogið fyrir að nú þrengi að hjá VSV og uppi séu hugmyndir um að selja togarann Þórunni Sveinsdóttur sem félagið keypti fyrr á árinu ásamt Leo Seafood. Félög í eigu Sigurjóns Óskarssonar og fjölskyldu sem nú undirbýr landeldi á laxi í Vestmannaeyjum.

„Nei, félagið á ekki í fjárhagslegum erfiðleikum.  Vinnslustöðin hefur stækkað mikið undanfarin ár með kaupum og sameiningum við önnur félög, aðallega hér í Eyjum og ávalt gengið vel að fjármagna stækkunina enda verið í góðum rekstri.  Vandinn við kaupin á Ós og Leo Seafood var að íslensku bankarnir höfðu ekki aðgengi að erlendu lánsfé til að endurlána okkur.  Þar voru erfiðleikar bankanna og það hefur komið fram í fréttum.  Það leiddi til þess að frágangur kaupanna tafðist.  En kaupin á félögunum eru gengin í gegn og við erum búin að fjármagna þau.“ sagði Binni.

Þórunn ekki til sölu

„Er Vinnslustöðin að selja þórunni Sveins? Nei, Vinnslustöðin er ekki að selja Þórunni Sveinsdóttur. Ég hef fengið spurningu um að við séum að selja Þórunni Sveinsdóttur allsstaðar að.  Ég veit bara að um það hefur hvorki verið rætt innan hóps stjórnenda né stjórnar.  Ég hringdi strax í skipstjórnendur á Þórunni þegar ég frétti af þessum ,,kjaftagangi”, vil ég segja, og sagði þeim að láta þessar sögusagnir sem vind um eyru þjóta.  Þetta hefur gengið svo langt að við höfum heyrt hverjir kaupendur eru og þeir vissu ekki heldur að þeir væru að kaupa!“ sagði Binni að endingu.

Mynd – Addi í London.

Binni og Sigurjón taka við spottanum á Þórunni Sveinsdóttur VE.