Vestmannaeyjar skarta ungu og kröftugu tónlistarfólki og hafa Bjarni og Guðrún verið óhrædd að gefa þeim tækifæri. „Frá fyrstu tónleikunum höfum við verið með sterka Eyjatengingu og fólkið okkar hefur haft mjög gaman að því að koma fram á tónleikunum. Það er líka mikils virði fyrir okkur sem stöndum í þessu,“ segir Bjarni Ólafur Guðmundsson sem heldur þrettándu Eyjatónleikana ásamt Guðrúnu Marý Jónsdóttur konu sinni í Hörpunni á laugardaginn.

Þegar litið er til baka má segja að hvergi er slegið af í vali á listafólki og tilfinning að alltaf sé reynt að gera betur. Þau eru sammála um það sé uppleggið. „Fólk talar um það, ekki síst fastakúnnarnir sem segja eftir hverja tónleika, þetta er það flottasta hingað til. Ekki sé hægt að toppa þetta, er það sem við fáum að heyra. Það er líka svo þakklátt sem er okkur svo mikils virði,“ segir Guðrún.

„Talandi um metnað þá höfum við aldrei verið með stærri hóp en á tónleikunum  en á laugardaginn þann 27. janúar. Í allt eru flytjendur tíu og erum við í vandræðum með finna nógu mörg lög á hvern flytjenda. Auðvitað er það áhætta en við viljum standa okkur,“ segir Bjarni og giskar á að heildina séu tónleikagestir um 15.000 og lögin 130 til 150.

Bjarni segir þetta kosta mikla skipulagningu og vinnu sem hefst strax eftir hverja tónleika. Þórir Úlfarsson, sem stjórnað hefur hljómsveitinni í níu tónleika og Eiður koma að þeirri vinnu. Hann segir það líka hjálpa að litlar breytingar eru á hljómsveitinni. „Okkur þykir líka gaman að hafa fengið Lúðrasveitina okkar og kórana, Karla- og Kvennakór Vestmannaeyja til liðs við okkur. Núna er Kvennakórinn að koma fram hjá okkur í annað skiptið og Karlakórinn í fjórða skiptið. Ég finn líka hjá öðru listafólki að því finnst kórarnir styrkja tónleikana,“ segir Daddi.

Fólk kemur aftur og aftur

Svo er það stóra spurningin, hvað eigið þið eftir standa lengi í þessu? Þau hlæja bæði. „Ég veit það ekki. Maður er svo ótrúlega þakklátur fyrir að fólk vilji koma aftur og aftur. Hvað þetta gengur vel. Við segjum stundum að best væri að hvíla á næsta ári. Á meðan að eftirspurn er til staðar getum við haldið áfram,“ segir Guðrún.

„En þetta er ekki bara að koma saman og syngja þjóðhátíðarlögin í janúar. Við erum að hittast Eyjamenn sem er svo stór hópur, ekki bara í Vestmannaeyjum. Við eigum þennan samastað í Hörpunni í janúar, á tíma sem við tengjum svo sterkt við. Þetta er öðrum þræði, ættar-, fjölskyldu- og vinamót. Þetta eru einu tónleikarnir í Hörpunni sem fá 30 til 40 mínútna hlé sem segir sitt.“

Bjartmar, Ragga, MC Gauti, Frikki Dór, Jón Jóns, Salka Sól, Védís Hervör. Albert í Moldu, dægurlagasöngvarinn frá Hoffelli. Að okkar mati vel í lagt.

Karlakór og Kvennakór Vestmannaeyja hafa æft stíft undanfarið ásamt Lúðrasveitinni og Moldu. Myndir Óskar Pétur.