„Fátt bendir til þess að loðnuvertíð verði í vetur þar sem lítið mældist af loðnu í vetrarleiðangri Hafrannsóknastofnunar. Mikið er í húfi en hefðbundin loðnuvertíð gæti skilað 20 til 40 milljörðum í útflutningsverðmæti. Stefnt er að því að halda til mælinga á ný í febrúar, en lítil vertíð gæti þýtt að aðeins erlendum skipum verði úthlutað kvóta,“ segir á forsíðu Morgunblaðsins í dag þar sem rætt er við Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar.

„Það er auðvitað ekki gott að lítið hafi fundist, en í fyrra kom loðnugangan mjög seint. Ég held að það finnist loðna en það er vont þegar það gerist seint,“ segir Binni um niðurstöðu mælinga Hafrannsóknastofnunar 16. til 23. janúar.

„Það eru langmestar líkur á að þetta verði lítill kvóti og þá fer töluvert til annarra þjóða, sérstaklega til Norðmanna. Þetta er áfall fyrir okkur,“ segir Sigurgeir. Samkvæmt fiskveiðisamningum Íslendinga við Grænlendinga, Norðmenn og Færeyinga fara töluverðar heimildir til þessara ríkja, sérstaklega til  Norðmanna. Það þarf því að gefa út loðnukvóta umfram tæp 39 þúsund tonn áður en Íslendingar byrja að fá hlutdeild í veiðunum.

„Auðvitað hefur þetta hellings áhrif. Áhrif á vaktir og þar með tekjur fólks. Þetta hefur mikil áhrif í öllum þeim sveitarfélögum þar sem loðnan er fyrirferðarmikil eins og í Vestmannaeyjum og á Austfjörðum,“ segir Binni aðspurður um afleiðingar algjörs loðnubrests.

Nánar í Morgunblaði dagsins.