Atkvæðagreiðslu um kjarasamning milli Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi sem undirritaður var þann 6. febrúar síðastliðinn lauk kl. 15:00 í dag. Á kjörskrá voru 1104 og greiddu 592 atkvæði um samninginn eða 53,62%. Niðurstaðan er að af þeim sem kusu sögðu 367 já eða 61,99%, 217 sögðu nei  eða 36,66% og auðir og ógildir seðlar voru 8 eða 1,35%. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 62,84% já og 37,16% sögðu nei.  Samningurinn var því samþykktur.

„Ég er ánægður með samninginn og þessi málalok. Við höfðum verið samningslausir frá því í febrúar 2019, eða í fimm ár og kominn tími til,“ segir Kolbeinn Agnarsson, formaður Jötuns Sjómannafélags í Vestmannaeyjum um kjarasamninginn. Í fyrra feldu þeir samning sem Sjómannasambandið hafði náð við SFS.

„Það sem bætist við samninginn frá því í fyrra er 400.000 króna eingreiðsla, desemberuppbót, veikindarétturinn er lagaður þannig að þú ert jafnsettur og þú værir á sjó í allt að 120 daga. Ef þú ert í frítúrakerfi ertu launalaus í fríinu eins og þú værir að róa. Yfirísun í landi fellur fellur út þannig að áhafnir skipa sem ísa fisk í kör fara heim um leið og búið er að binda. Þurfa ekki að standa allan daginn og ísa fisk sem einhver úti í heimi hefur keypt. Þetta er það helsta sem kemur til viðbótar.“

Annað sem skipti máli er styttri samningstími. „Hann er styttur úr tíu árum í fimm með venjulegum uppsagnarákvæðum og lengist sjálfkrafa um tólf mánuði sé honum ekki sagt upp. Skráning skipa fer úr brúttótonnum í lengdarmetra til að þeir passi betur inn í samninginn.“

Breyting á lífeyrisréttindum til hins betra sem náðust í fyrri samningi haldast. „Lífeyrisgreiðslur fara úr 12 prósentum í 15,5 prósent af öllum launum. Er eins og hjá öðru launafólki í landinu. Tímakaupið hækkar líka verulega, fer úr 1800 krónum í 2900 krónur. Tryggingin hækkar líka verulega. Fer úr 326.000 krónum í 460.000. Kannski ekki mikið kaup miðað við það sem gerist í landinu í dag og tryggingin má ekki vera undir lágmarkslaunum.“

Aðspurður um afstöðu félagsmanna í Jötni sagði hann að hún hefði að mestu verið góð. „Menn voru flestir ánægðir með þessa viðbót en ekki allir sammála eins og gengur. „Nú er búið að semja við okkur en ekki við menn í Sjómannafélagi Íslands sem verða á gamla samningum áfram. Þangað til þeim sem því stjórna hugnast að semja. Fá uppgert samkvæmt gamla samningnum en hvað útgerðin gerir veit ég ekki,“ sagði Kolbeinn að endingu.