Eld­gos hófst á Reykja­nesskaga í gærkvöldi og er talið það öflugasta frá byrjun jarðeldanna.  Gosið braust út á Sund­hnúkagígaröðinni á milli Haga­fells og Stóra-Skóg­fells, frem­ur nær Stóra-Skóg­felli, á svipuðum stað og gosið sem varð 8. fe­brú­ar. Á vef­mynda­vél mbl.is má sjá að gosið hófst klukk­an 20.23. Greint var frá gos­inu á mbl.is mín­útu síðar.

Okkar maður, Addi í London var ekki fjarri og tók þessar glæsilegu en um leið óhugnanlegu myndir af gosinu. M.a. tók hann myndir af Grindarvíkurvegi sem fór undir hraun í nótt. Illa leit út um tíma í nótt en dregið hefur úr gosinu og von um að ekki verði frekara tjón.