Yfir þúsund pysjur skráðar

Skráðum pysjum í Vestmannaeyjum fjölgar nú hratt en þær eru komnar yfir eitt þúsund það sem af er pysjutímabilinu. Samkvæmt upplýsingum á lundi.is hafa alls 1.036 pysjur verið skráðar, þegar þessi frétt er skrifuð. Pysjutímabilið er því komið á fullt skrið og víða má sjá björgunarfólk á ferðinni um bæinn þegar skyggja tekur. Skráning pysjanna […]
Fjölmenni á opnum fundi Áfram Ísland

Fjölmennt var á opnum fundi Áfram Ísland sem haldinn var í Golfskálanum í Vestmannaeyjum í hádeginu í dag. Fundurinn var haldinn í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fram fer laugardaginn 29. ágúst. Á fundinum fluttu erindi Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, og Sigurður Arnar Magnússon, starfsmaður Laxeyjar og leikmaður ÍBV. Fundarstjóri var […]
Kvennalið ÍBV sigraði alla sína leiki á Ragnarsmótinu

Kvennalið ÍBV í handbolta vann alla þrjá leiki sína á Ragnarsmótinu á Selfossi í vikunni. Mótið er mikilvægur liður í undirbúningi liðsins fyrir komandi keppnistímabil í Olís deildinni. ÍBV byrjaði mótið af krafti og vann stórsigur á Víkingi Reykjavík, 49-29. Mörk ÍBV: Amelía Dís Einarsdóttir 9, Sandra Erlingsdóttir 9, Andrea Jacobsen 8, Birna Berg Haraldsdóttir […]
Styður lengri útivistartíma 10–12 ára barna

Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja styður fyrirhugaðar breytingar á reglum um útivistartíma barna. Meðal breytinga er að börn á aldrinum 10–12 ára megi vera úti til klukkan 21 yfir vetrartímann, klukkustund lengur en nú er. Ráðið telur mikilvægt að reglurnar taki mið af breyttum samfélagsaðstæðum, aldri og þroska barna og fjölbreyttum tækifærum þeirra til félagslegra samskipta […]
Þyrlupallurinn í Surtsey stækkaður

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt framkvæmdaleyfi fyrir stækkun þyrlupallsins í Surtsey. Núverandi pallur er 36 fermetrar en til stendur að stækka hann í 100 fermetra til að auðvelda og tryggja betur lendingar þyrlna Landhelgisgæslunnar. Landhelgisgæslan hefur komið þeirri skoðun á framfæri að núverandi pallur, sem er sex sinnum sex metrar, sé of lítill fyrir […]