24 dagar til Þjóðhátíðar

Mikið líf var í Herjólfsdal í gærkvöldi þegar hópur af sjálfboðaliðum var þar samankominn við að undirbúa fyrir Þjóðhátíð. Myndirnar tala sínu máli.

Dagskráin fer að verða fullmótuð, samkvæmt vefsíðunni dalurinn.is, en þau sem koma fram eru meðal annarra: Ragga Gísla, Jóhanna Guðrún, Hreimur, Herbert Guðmundsson og Aldamótatónleikarnir. Auk þeirra er búið að bóka Birgittu Haukdal, Herra Hnetusmjör og Guðrúnu Árnýju sem mun koma fram á sinni fyrstu Þjóðhátíð.

Magnús Kjartan verður svo með brekkusönginn, en hann sá líka um hann í fyrra, en þá var þeim sjónvarpað þar sem enginn mátti vera í Dalnum.

Nokkur fjöldi gesta er á tjaldsvæðinu í Herjólfsdal.
Hópur að mála rekkverkið á brúnni yfir tjörnina.
Margir orðnir spenntir fyrir Þjóðhátíð í Herjólfsdal eftir tveggja ára hlé.
Hlíðarnar í Dalnum eru grænar og fallegar.
Sjaldgæft logn var í Dalnum í gær.
Einungis 24 dagar eru til Þjóðhátíðar.
Unnið var við matartjaldið, brúna og sviðið í gærkvöldi.

Nýjustu fréttir

Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.